Berglind Bergsdóttir

Skúbb frá Amerikunni

24.07.2007 02:02:18 / berglind

Takk fyrir mig!!!

Jæja þá er þetta bara alveg að verða búið í orðsins fylstu merkingu.... ég flýg heim í dag. Ég fór og keypti síðustu töskuna, og pakkaði áðan, núna veit ég allavega að allt um passa og engin yfirvigt:)
Ég er búin að vera bardusa svona hitt og þetta síðasta mánuðinn minn, en svona það helsta er að ég fór til Boston með honum kæró mínum, hitti alla vini hans og svona, kíktum á djammið á laugardaginn, drukkin margaríta allt kvöldið, alveg í þessu besta bara. Urðum vel ölvuð, fórum niður í bæ, dönsuðum af okkur rassinn, hrikalega gaman.
Auðvitað er maður líka búinn að versla soldið... hlakka til að koma heim og byrja að nota öll þessu föt sem ég er búin að versla mér.
Núna er ég í New Haven hjá Siggu, Arnari og strákunum mínum, það var æðislegt að sjá þau öll aftur. Farin að sakna þeirra alveg hrikalega.
Trúi því ekki að ég sé bara að fara að kveðja, bara er ekki að trúa því. Það verður alveg rosalega erfitt. En svona er bara lífið og maður verður bara að sætta sig  við það.
Elsku Sigga, Arnar og dúllusnúllurnar mínar, Takk æðislega fyrir yndislegt ár, hefði aldrei nokkurn tímann getað beðið um æðislegri fjölskyldu, og ég veit ég mun alltaf eiga ykkur að, og það er ómetanlegt. Hlakka til að geta komið og heimsótt ykkur, og hitt ykkur á Íslandi.

Ég átti bestasta ár hérna í Ameríkunni, hitti hrikalega skemmtilegt fólk, mæli eindregið með því að fólk geri þetta....:D

Þetta er síðasta blogg sem verður skrifað úti í Ameríku, hver veit nema að maður skrifi aðeins inn á þetta þegar ég kem heim, svona til að láta aðeins vita af sér.

TAkk fyrir mig!!!

Við erum svo flott
apríl-maí 2070
PA070064
vúfff
 við

» 11 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 20:44:35 / berglind

Alveg að verða búið =(

Sælt veriði fólkið:) Jæja þá á ég bara eftir að búa nokkra daga hjá Siggu, Arnari og strákunum mínum. Þetta er alveg svakalega erfitt... ég vil ekki fara frá þessum elskum. En svona er líf au pairanna, þær koma og fara:( en auðvitað mun ég sjá þau öll aftur, ætla að fara og kíkja á þau í nýja húsið þeirra í New Haven. Það verður æðislega gaman. Fyrir þá sem vita ekki, þá er ég að fara að búa hjá Jeff í 1 mánuð áður en ég fer heim, flýg þann 26.júlí, held ég. Er ekki búinað fá staðfestingu á fluginu mínu, en ég bað um þann dag, og ætli ég fái hann ekki, fyrst það er verið að fljúga 2svar á dag frá NY, þaðan ætla ég að fljúga. En agalega á ég eftir að sakna Ameríku, og sérstakelga fólksins... alveg rosalega, rosalega, rosalega. :cry:

Mamma og Didda frænka eru að koma í kvöld, get ekki beðið. Verður svo gaman... gaman að þær geti komið og séð hvað ég er búin að vera að bardusa síðasta árið.

Ég ætla að segja stuttlega frá síðustu helgi, ég fór sem sagt með honum Jeff mínum til Lynchburg, systir hans og kærasti búa þar. Og hann átti heima þar áður en hann flutti hingað. Afmæli kærasta systir hans var á laugardaginn, það var svaka barbíkjú, fullt af fólki, hitti alla vini hans Jeff, sem var svakalega gaman. Þannig þetta var bara svona ekta barbíkjú eins og maður sér í bíómyndunum hjá svörtu fólki, endalaust af fólki, endalaust af mat, endalaust af áfengi... klikkuð tónlist. Bara gjeggjað... ætlum að fara þangað í viku í næsta mánuði. Það verður svaka gaman...:D

Jæja.. ekki mikið meira að segja frá, eða meira það að ég er ekkert að kafna úr spenningi að skrifa hérna inn.... eins og þið hafið tekið eftir. Reyni að koma með færslu áður en ég flyt til Jeffs, en lofa engu:)

 

Knús til ykkar allra!!!!

 Ykkar –Berglind-


» 19 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 17:58:21 / berglind

Heaving fun... ú je!!!

Wellwell gott fólk... Helgin hjá mér var bara alveg æði:) Var að passa á föstudag fram á laugardag, Sigga og Arnar fóru aðeins að skemmta sér í Philadelphiu. Síðan á laugardaginn hringir Adriana í mig og spyr hvort ég og Nicole viljum koma til Ocean City, sem er strönd svoan 3 tímum frá DC. Auðvitað skelltum við okkur. Fórum á djammið á laugardagskvöldinu, sem var þrusu gaman fórum í partý hjá vinum hans þarna, og við bara drukkum okkur skemmtileg.. hehe.. og vitiði hvað. Jesús pétur.. einn strákurinn þarna.. hehe ég fer bara að hlægja aðhugsa um þetta.. en allavega skal deila. Við erum bara öll að drekka út á svölum, svaka stuð... og allt í einu fer einn strákurinn eitthvað út, ogþegar hann kemur aftur mætir hann bara á bolnum og engu að neðan. Við föttuðum þetta ekkert strax, og svo leit ég niður, og sprakk út hlátri, þá var hann bara á rækjunni. :^)Djöfull var þetta fyndið... og var svona eitthvað að leita að honum, og greip alltaf í punginn.. við gerðum svo mikið grín að honum. Skil ekki enn hvað var að gerast í hausnum á honum til þess að mæta bara á drjólanum út á svalir. :haha::haha:

Síðan á sunnudeginum vöknuðum við snemma, og fórum á Jet Ski.. djöfull var gaman. Ég var samt svona nett skræfa, fór alveg sjúklega hratt og svo um leið og ákvað að beygja hægði ég bara geðveikt á. Hehe... Eftir það var farið á ströndina og legið þar í nokkra klukkutíma áður en við ákváðum að fara heim. Þetta var alveg æðislega gaman. Langar aftur á ströndina.

Núna eru bara 6 dagar þangað til mamma og Didda frænka koma að heimsækja mig. Hlakkar ekkert smá mikið til.:)

En núna er líka bara 10 dagar þangað til hún Nicole mín fer frá mér. Jii það verður hrikalega erfitt að díla við. Hún er búin að gera þetta ár hjá mér svo yndislegt, ég er svo feginn að eiga hana að. Maður skellir sér bara til Namibíu. Ekki amalegt það!!!

Um helgina er ég að fara til Lynchburg, Jeff átti heima þar fyrir 2 árum, og systir hans býr þar núna, kærastinn hennar á afmæli, og við ætlum að mæta á svæðið. Hlakkar ekkert smá mikið til. Fylllllerrrríííí.... Jejejeeeejejeeeee ó jeee8|

Búinn að setja inn myndir... kíkið endilega á það.

 

-Ykkar Berglind-

 

 

júní 012
júní 019
Við fórum á Jet Ski<img src= gjeggjað" width="379" height= "256">



» 6 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 13:47:53 / berglind

Alveg crazy sparkandi í mexikanska rassa!!!

Hvað er svo að frétta?? Jæja þá er minna en 2 mánuðir í kellu. Mér kvíður alveg hrikalega fyrir að fara héðan. Þetta ár er búið að vera alveg æðislegt, mér finnst ég búin að þroskast við þessa lífsreynslu, og þetta er bara eitthvað sem ég mun ALDREI gleyma, mæli eindreigið með þessu. Fólkið mitt hérna úti, ég á eftir að sakna þeirra svooo mikið. Yndislegu strákarni mínir, sem stækka bara og stækka, litli Arnar Helgi sem var bara lítill snáði þegar ég kom er núna orðinn alger gaur, Kristján orðinn 5 ára ekkert smá duglegur, og Benendikt stóri bróðirinn sem er alltaf til í að hjálpa við allt, ábyrgðafyllsti 7 ára strákur sem ég þekki:) Mér finnst bara erfitt að hugsa um að ég sé að fara frá þeim öllum. Svona er lífið... ekki alltaf dans á rósum. Mér finnst líka svo fyndið, því þegar ég kom út og það var svona námskeið fyrir au pairarnar til að búa okkur undir árið, og það var sagt við okkur að við ættum ábyggilega eftir að gráta meira þegar við færum héðan heldur en þegar við færum frá heimalöndunum okkar, og mikið er það rétt. Ég á ábyggilega eftir að gráta úr mér augun. Þetta verður með erfiðari mómentum í lífi mínu að fara héðan.

En jæja... nóg um það. Ætli maður eigi ekki eftir að koma með aðra svona væmna færslu fyrr eða síðar:) hehe...

Helgin mín var þessi fínasta, var með 4 daga helgarfrí, þurfti aðeins að passa á sunnudaginn en það var bara nokkrir klukkutímar. Á föstudagskvöldið skelltum við okkur í bíó, og ég hafði ekki hugmynd á hvaða mynd ég var að fara, 28 weeks later, hélt þetta væri bara eitthvað spennumynd, nei aldeilis fjandans ekki... þetta var hrikaleg hrillingsmynd, og Jeff veit að mér finnst svoleiðis myndir ekki skemmtilegar... og sjitturinn titturinn skeit næstum  á mig þarna í bíósætinu, og Jeff fannst þetta náttla sjúklega fyndið.. síðan á laugardaginn fórum við í parkinn Six flags, Dagrún og Helgi vita nú hvað það er... gjeggjað stuð. Núna er veðrið líka orðið svo gjeggjað hérna. Mamma og Didda þurfa nú ekki einu sinni að hugsa um að taka með sér síðbuxur eða peysur, þær munu deyja úr hita hérna. Á laugardagskvöldið skelltum við okkur á djammið, og ég var svona nett blek á því, hehe við skulum ekkert ræða það neitt meir.8| Og á sunnudaginn pössuðum við aðeins, og síðan var matarboð hérna hjá Siggu og Arnari, og við átum á okkur gat af lambalæri, kartöflum, grænmeti og sveppasósu... mmmmm ekkert smá gott. Neinei.. síðan skelltum við okkur í CVS, sem er svona einskonar apótek, og hehe.. Jeff var eitthvað að pirra mig með því að slá í rassinn á mér, aftur og aftur og aftur og aftur... og ég var orðinn svona nett pirruð á kauða, og var eitthvað að skoða í hillunni þarna, og byrjaði svona að sparka aftur fyrir mig, ætlaði nú kannski ekkert að hitta hann, bara láta hann hætta, og haldiði ekki bara að ég hafi sparkað 2 sinnum í eitthvern mexikana sem var að beyja sig niður þarna í eina hilluna. Ég náttla kafnaði úr hlátri og reyndi að byðjast afsökunar á þessu, hann bara hristi hausinn ekki sáttur, sem ég skil náttla ágætlega, átti kannski ekki von á því að eitthver stelpa færi að dúndra í rassinn á honum í CVS. :haha::haha::haha:Sjæsinn ég kafna enn úr hlátri þegar ég hugsa um þetta.

Jamm.. og síðan á mánudaginn var nú bara legið í leti, og farið aðeins niður í DC með teppi og snarl í góða veðrinu. Tekið því rólega!!

Sakna ykkar.. elska ykkur

 

Ykkar –Berglind-


» 14 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 13:16:18 / berglind

Alltaf eitthvað að gerast:)

Jæja þá er næstum komin ný helgi og ég er að fara að segja ykkur frá síðustu helgi. En ég er hætt að lofa upp í ermina á mér færslum, ég er greynilega ekki með þetta í mér... þetta bloggarablóð:)
Síðasta helgi var alveg nokkuð skemmtileg skal ég segja ykkur. Ég fór í Long Island University, kláraði síðustu 3 einingarnar sem ég átti eftir að klára, þannig er mál með vöstum að við au pairarnar þurfum að klára 6 einingar. Og til að auðvelda okkur þetta nú svona aðeins, þá getum við valið um að fara í skóla, bara svona venjulegan þannig séð, og taka kúrsa í hinu og þessu, eða þá fara til Long Island yfir eina helgi og fá 3 einingar. Hver velur ekki auðveldu leiðina út úr þessu.. hehe
Ferðalagið byrjaði sem sagt á föstudagsmorgun kl. 8, ég og Ncole fórum með lest niður í Chinatown, og þaðan tókum við rútu til New York. Jeeiiiijjjjj... aldrei leiðinlegt að fara þangað, og þar ákváðum við að stoppa nú aðeins, fá okkur að borða, kíkja í H&M, og síðan þurftum við að taka lest þaðan til Long Island. Vorum komnar þangað um 5 leitið, og það var eitthvað svo agalega kalt þennan dag... skil etta ekki eins og það er nú búið að vera blankandi. Jamm komum sem sagt og byrjuðum strax í tíma, frá 6-9, en var nú ekkert agalega erfitt, tekin vídjómynd á þetta.
Síðan lá leiðinni í campusinn sem við áttum að sofa í, og jisús pétur, myndi ekki meika að búa svona í heilt skólaár. Hell no!! Sem sagt 8 stelpur í herbergi, en við vorum reyndar heppnar og vorum bara 4, hittum þessar fínu sænsku stelpur á lestarstöðinni og plötuðum þær að vera með okkur í herbergi. Jámm... 8 stelpur, og 2 klóett, og 2 sturtur. Getiði rétt ýmindað ykkur örtröðina á morgnana. Og svo voru kojur, og ógeðsleg teppi, virkilega.. og ekki nóg með það þá var frost þarna inni, við vorum að drepast úr kulda þarna alla nóttina, og áttum erfitt með svefn útaf því:( puffff... :evil:
Laugardaginn vorum við 12 klukkustundir í tíma!!!! Ekki það skemmtilegasta sem ég hef gert..hehe.. en var nú samt fróðlegt og margt skemmtilegt sem við vorum að gera.
En nóg af því leiðinlega... síðan um kveldið var Nicole búin að tala við vin sinn sem býr í Queens að koma og hitta okkur með eitthverja vini sína og svona, og talað var um að hann yrði mættur um 10 leytir, eða þeir. Og við allar nánast reddí þá, og svo byrjuðum við að bíða, og bíða og alltaf þegar hann hringdi var 20 mínutur í hann, við vorum orðnar svona nett pirraðar, og ákváðum að skella okkur út í sjoppu sem var þarna nálægt eða svoan 10 mínutna labb, og var sem sagt ekki gert ráð fyrir gangandi vegfarendum, og við vorum bara að labba þarna úti í kanti á götunni, og vorum í hælaskóm og svona agalega pjöllur. Neinei þegar við komum í sjoppuna var lokað!!! Búnar að hætta lífi okkar þarna fyrir bjór og neibb lokað!! Ekki nóg með það.. þá kemur löggan og spyr okkur hvað við séum að gera, og ég bara: okkur langaði í nammi. Fyrsta sem mig datt í hug þegar ég sá lögguna að ljúga.. hehe og hann bara núnú ég hélt þið væruð að leita að bjór og ég bara neii ekkert svoleiðis, bara snakk og nammi. Veit ekki afhverju ég var að segja það þar sem við vorum allar orðnar nógu gamlar til að fá okkur bjór. Hehe...:haha:

Og svo fór hann að segja okkur að við mættum alls ekki vera að labba svona í kantinum á götunni, það væri stórhættulegt og bara þið vitið hvernig þessar löggur eru. Þá spyr ég hvernig við eigum þá eiginlega að komast til baka, og hvað  haldiði að kallinn hafi ekki skutlað okkur til baka.. hvaða hvaða:) þannig við fengum ride í löggubíl.. ekki slæmt.

Við komum sem sagt til baka bjórlausar, orðnar nett pirraðar á kauða vini hennar Nicole, og ákváðum bara að við ætuðum ekkert að fara, og svo byrjar hann að hringja um 12 aðþví hann var kominn, þá svöruðum við bara ekkert. Búinn að láta okkur bíða í 2 tíma, aldeilis ekki. Hann gat bara átt sig:klikk:

Sunnudagurinn: vorum í skólanum frá 9-2.30. Vitiði hvað??? Mín var að labba á klóið, bara hin rólegasta, kemur ekki einn kennarinn hlaupandi á eftir mér.... heyrðu, þú ert með klósettpappír á þér, og ég bara hah?? Á mér, jamm ég var með klósettpappir hangandi niður rassinn á mér, og við erum að tala um 75 nemendur í þessum tíma, en sem betur fer labbaði ég svona á bakvið bekkinn, þannig það sáu þetta ekkert allt of margir, en sá nú samt alveg þónokkrar stlepur benda á mig og hlægja og svona þegar ég var sest aftur niður. But who cares.. á aldrei eftir að hitta þær aftur!!
Síðan fórum við Nicole aftur til New York, tókum 3 tíma sprell þar, versluðum kíktum á fólkið í NY. Mjög mjög gaman. Síðan var bara tekið bussinn heim:D

Ég er hæst ánægð með þessa helgi, og núna um helgina er ég í 4 daga fríi, þannig það verður gert eitthvað skemmtó.

 

Vigdís, Hjálmur og Ýmir til hamingju með hana litlu Líf ykkar. Hún er algert æði. Ýmir snúlli til hamingju með afmælið! Elska ykkur:*

 -Berglind-8)

» 9 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 21:23:58 / berglind

Í sól og sumari... dadaraddara

Jæja félagar... núna er maður orðinn svo latur að fólk er hætt að kíkja inn á síðuna. Hehe... En já margt og mikið er búið að ske, erfitt að telja allt upp þar sem það er kominn svo rosalega langt síðan síðast. Ég fór allavega heim, og hafði að voða gott fyrir utan smá læknastúss:(  Fór með stelpunum á djammið í reykjavíkinni, og djöfull var gaman. Núna þegar maður kemur heim og fer á djammið finnst manni alltaf klikkað, þetta er svo mikil breyting frá héðan, og bara alltaf gaman að hitta alla og sonna:) Síðan var ég bara voða róleg. Hitti stelpurnar og við grilluðum áður en ég fór, það var rosa fjör, sá hana litlu Ísabellu, alger rúsína. Daginn áður en ég fór aftur út fór ég í brúðkaup hjá Sigurbjörgu systir, og það var ekkert smá flott. Þau voru bæði alveg hrikalega sæt og fín.

Síðan var bara farið til útlandanna aftur, en það er nú stutt í mig í þetta sinn, kem heim 27.júní. Þá skellir maður sér beint á Grundfirskadaga... tekur smá sveitadjamm á þetta. Klikkar ekki!!! Síðan vona ég að maður geti bara farið að vinna fljótlega eftir að það. Verð náttla nýbúin að vera í mánaðarfríi, og þeir sem þekkja mig rétt vita að ég er ekki beint þessi frí manneskja. En það verður næs að vera hérna úti í sólinni.
Á fimmtudaginn, daginn eftir að ég kom heim komu Dagrún og Helgi í heimsókn til mín, og þessi helgi er búin að vera alveg hrikalegahrikalega skemmtileg. Á föstudaginn var tekinn svaðalegur verslunardagur á þetta, þau versluðu og versluðu!! Ég svona rölti með. Um kvöldið fórum við út að borða og í bíó á Spiderman 3... mæli eindregið EKKI með henni.. hehe mér hefur reyndar aldrei þótt þessar Spidarman myndir eitthvað spes. Laugardagurinn var mergjaður, við fórum í svona skemmtigarð sem heitir Six flags... og ó mæ god.. ég fór í rosalegustu rússíbana sem ég hef farið í á ævi minni, einn var svo stór að ég meig næstum því í mig áður en ég fór. En djöfull var gaman. Ætla pott þétt aftur:) Síðan kíktum við aðeins út á djammið um kveldið, vorum samt orðin ansi búin á því eftir daginn. Svo var bara farð á makdónalds og étið á sig gat og svo bara að lúlla sér. Sunnudaginn vöknuðum við frekar snemma fórun niður í Gerogetown og þau héldu áfram að versla, síðan var leiðinni haldið niður í DC að kíkja á Hvíta húsið og Nálina. Veðrið var frekar gott þannig það var næs að rölta. And then fórum við á uppáhalds veitingastaðinn minn Cheececake factory, fengum okkur öll alveg hrikalega gott að borða, og ómægod osatkökurnar þarna eru sjúkar!!!!!! Jamm svo fór ég bara að sofa í hausinn á mér, á meðan þau horfðu á vidjó. Sunnudagurinn fór bara í að redda því sem eftir var að redda og svo fóru þau bara á klakann:(
Dagrún og Helgi takk fyrir æðislega helgi, þetta var alveg æðislega gaman! Hafið það gott allir saman.

-Ykkar Berglind-

 

 

ég og mamma
skutlur
Sigurbjörg og Pabbi
Mamma og Pabbi
Georgetown
Jump
loseit
Hörkutólin



» 11 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 16:03:57 / berglind

Jæja.... hver er að koma á klakann:)

Gott fólk.. þetta blogg, stundum spyr ég mig að því afhverju ég er með það. Ég er allt of löt að skrifa inn á það!!

Ég á eftir að segja frá svo miklu eitthvað núna, eða hvað??? Ég átti viku frí um daginn, sem var mjög fínt, fyrir utan veikindi. Við tókum því bara rólega í byrjun vikunnar og síðan skelltum við skötuhjú okkur til New York, ég veiktist á þriðjudeginum, og við fórum á miðvikudeginum til New York, þannig það var bara kleypt pillur eins og ég fengi borgað fyrir það til að halda mér okey. Við vorum komin til Brooklyn, þar sem við gistum hjá frænda hans Jeff um 5 á miðvikudeginum, þá var bara skellt sér að kaupa bjór og fengið sér að borða, síðan slöppuðum við aðeins af, og síðan bara í djammgallan og út. Tókum lestina niður til Manhattan, fórum á agalega fínan stað þar, hét eitthvað Lotus eða eitthvað svoleiðis, áttum að hitta Nicole og Biate þar. Nicole var sem sagt í NY hjá vinkonu sinni. En vinkona hennar komst ekki inn, því þær eru með fölsuð skilríki, og eitthvað illa gekk að komast inn, en okkur var alveg sama. Við bara dönsuðum af okkur rassgatið, drukkum margarítur og urðum ágætlega ölvuð. Fórum svo heim til frænda hans um 3 leitið. Var farinn að finna vel fyrir því að ég væri lasin, farin að skjálfa alveg eins og vitleysingur. Það var líka ÍÍÍssssSSS kalt þarna. Jisssúúss!!!

Daginn eftir ákváðum við að skella okkur á Time sqver og rölta til Manhattan, og fórum aðeins í Central. Park, en svo gáfumst við upp vegna kulda, og skelltum okkur í mall í Brooklyn, þar var verslað smá, síðan um 9 leitið fórum við heim, þreytt eftir daginn, og mér leið of illa til að gera eitthvað um kvöldið. Um nóttina varð ég sjúklega lasin, þannig daginn eftir ákváðum við að drífa okkur heim, ætluðum að vera eina nótt í viðbót. En drifum okkur bara heim. Þetta var góð NY ferð, en langar að fara aftur, og panta þá ekki að vera lasin og betra veðurJ

Restina af viku fríinu mínu tókum við það bara nokkuð rólega, ég að jafna mig af veikindum.... gaman að vera í vikufríi með mér.

Síðan kom fjölskyldan heim frá Íslandi, þau höfðu það svakalega gott þar. Sem ég efaði náttla ekki. Það var ægilega gott að hitta þau, saknaði þeirra.

Jæja núna koma fréttirnar sem allir hafa verið að bíða eftir... hehe. Ég er að koma heim fimmtudaginn 19.apríl. Reyndar vegna læknastúss og svoleiðis leiðindum, en maður verður að gera sem best úr því. Líta á björtu hliðarnar, er það ekki það sem maður á alltaf að gera??!

Hlakka til að sjá alla:** Lovjú!!!

Ykkar –Berglind-


» 13 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 01:42:51 / berglind

New York baby!!!!!!

Hey... Jæja er ekki kominn tími á að láta heyra aðeins í sér. Ég læt alltaf bíða aðeins eftir mér. Þið skiljið svona eins og fræga fólkið... Jáhh... ég er bara í fríi, agalega næs. Veðrið buið að vera truflað.. eða svona nánast of heitt. 32 stiga hiti í dag. Ég var að steikjast hérna fyrir utan hjá Jeff. Eina manneskjan í húsinu sem langaði að ná mér í lit. Haha...ekki eins og restin þurfi á því að halda. En Jeff var búinn að vera í Flórída að vinna í 2 vikur, og kom heim á föstudaginn. Það var mikil mikil gleði!!! Saknaði hans alveg óskaplega. En núna erum við bara að dúlla okkur í fríi saman. Hann fer aftur til Flórída... líklegast á mánudaginn, en annars er það ekki alveg komið á hreint. Er eiginlega ekki að nenna að hafa hann svona langt í burtu. Vonandi að maður muni hafa tök á þvíð að kíkja á hann. Væri meira en til í að skella mér til Flórída.... svona áður en maður yfirgefur Bandaríkin. Ekki það að planið sé ekki að koma aftur.

Sigga, Arnar og strákarnir eru á íslandinu góða. Vonandi að það sé alveg æðiselgt hjá þeim. Trúi nú ekki öðru, þar sem það er alltaf gaman að kíkja í heimsókn á klakann.

Þar sem ég hef ekki sagt ykkur neitt heill lengi.. ætla ég að byrja aðeins að segja ykkur frá þar síðustu helgi. Það var brjálað djamm á kellu. Fór í afmæli til Ryans á föstudeginum... endaði með djammi til 6 um morguninn. Þvílíkt gaman... alveg blek á því. Síðan á föstudeginum vorum við Nicole alveg dauðar á því, og ætluðum bara að fara í bíó. Vorum aldeilis á leiðinni þangað, þegar Adriana hringdi og vildi endilega fá okkur í partý...og við partyanimalin.. auðvitað skelltum við okkur. Urðum aftur svona nettar á því, enduðum í drykkjuleik og svoleiðis vitleysu. Svona eins og gengur og gerist. Jamm, og sunnudagurinn fór bara í svona hitt og þetta. Fórum aðeins niður í Gerogetown fengum okkur mexikanst að borða. Síðan bara heim. Þurftum aðeins að hvíla okkur eftir pakkaða helgi. En síðan varð stelpan bara lasin... byrjaði að liða svona nett illa á mánudaginn, hélt kannski að maður væri bara enn að jafna sig eftir helgina. Varð aðeins verri á þriðjudaginn, með smá hita, en samt svona allt í lagi. Síðan varð ég alveg off á miðvikudaginn og Sigga kom heim úr vinnunni og var líka heima á fimmtudaginn, og ég varð miklu betri. Enda var nánast ekki séns að ég myndi sleppa við þessa pest, þar sem Arnar Helgi, Sigga og Kristján voru öll búin að vera með þetta.

Þessi helgi fór bara í að taka því rólega með Jeff. Svo á morgun erum við að fara til New York. Get ekki beðið, ætlum ábyggilega að vera 2 eða 3 daga, ekki alveg komið á hreint. Það verður allavega rosalega gaman.

Jæja.. ætla ekkert að vera að hafa þetta neitt lengra. Knússs á línuna!!! :**:**

-Berglind-


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 02:43:39 / berglind

Alveg að koma sumar:):):)

Hvað segiði gott?? Ég er bara góð hérna í Ameríkunni. Veðrið er bara alltaf að verða betra og betra. Fengum 2 daga í síðustu viku 27 stiga hiti, og í dag var 16 stiga hiti. Á að vera mjög gott veður út næstu 2 vikur, svo veit ég ekki meir.

Mmmmm.. er að japla á íslensku nammi. Mamma og pabbi Siggu voru að koma.. og rosalega elska ég íslenskt nammi:) Best í heimi.. hehe

Síðasta helgi var alveg agalega róleg á því. Mér finnst eins og ég sé alltaf að segja að ég sé bara í rólegheitunum. En já við Jeff vorum bara að dúlla okkur eitthvað um helgina. Hann fór til Flórída á sunnudagsmorgun, þannig á laugardaginn var hann bara að pakka og svona. Ég tók minn mesta letidag ever... við vöknuðum um 2, fórum og fengum okkur að borða, fórum heim, ég fór aftur upp í rúm. Ég borgaði litlu systir hans Jeff og litla frænda nammi fyrir að nudda mig. Kemur ábyggilega ekki mörgum á óvartJ haha...

Já á föstudaginn: Horfðum við á Saw 3, og omg ég varð svo reið eftir að hafa horft á þessa mynd. Ótrúlega ósanngjörn mynd. Hmm...

Jamm sem sagt núna er Jeff í Flórída. Ég er ógeðslega abbó.. ég er að deyja. Hver veit nema að ég skelli mér þangað í nokkra daga. Kemur í ljós í vikunni. I will keep you posted.

Hérna eru skoh aldeilis allir búnir að vera veikir, fyrst Arnar Helgi snúllinn minn, síðan Sigga, núna Kristján, ég er búin að vera eitthvað slöpp í dag. En ég er enn að vona að ég sleppi við þessa pest. Tekur viku að losna við hana, og litli Arnar tók 2 vikur að losna við hana. Litli kúturinn... hundleiðinlegt að vera veikur og skilja ekkert almennilega hvað er að:(  Ég og Benedikt erum eftir. Hver veit nema að við sleppum. Maður má alltaf láta sig dreyma.

Jæja ekkert svo spennandi færsla, en allavega færsla.

-Ykkar Berglind-

 

» 14 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 02:56:51 / berglind

Bestasti pabbinn í ÖLLUM HEIMINUM orðinn 50 ára!!!!!

Elsku Pabbi

Til Hamingju með 25 ára afmælið... nei er það 35 ára, neiiii alveg rétt 39 ára:) Hehe... Enginn er eldri en hann vill vera;)
Þú ert bestasti bestasti langlanglang bestasti pabbinn í öllum heiminum. Ég sakna þín svo mikið, og ég vildi óska þess að ég væri hjá þér og ykkur öllum á þessum stóra afmælisdegi.
Þið munuð hafa það gott á Tenerife:D

Ætla að koma með smá myndasyrpu, hann pabbi minn hefur afrekað alveg helling á sínum 50 árum!!!

Pabbi töffari
-Flottur-
Picture 051
-Gifti næst elstu dótturina-
Picture 045
-Eignaðist 6 "yndisleg" börn-
Picture 055
-Slasaði sig allt of oft- :)
Uppáhalds fólkið mitt
-Á fallegustu konu í heimi-

Picture 012mynd SN3fWP[1]

-Eignaðist fullt af afabörnum- og þau verða alltaf fleiri og fleiri. Á því miður ekki mynd af þeim öllum:S

Pabbi þú getur verið stoltur af þínum 50 árum:haha: Þú ert æði!!!

Þín Berglind


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 13:02:04 / berglind

Kuldaboli að bíta mig í rassinn

Wellwellwell:) Heyalllíjúbba

Hvað segja svo allir?? Ekki bara hressleikinn að drepa líðinn. Ég er enn að bíða eftir sjálfboðaliða að kíkja í heimsókn... læt mig dreyma að eitthver bjóði sig fram. Núna fer að koma svo fallegur tími. Því mér er sagt að áður en laufin koma á tréin, koma blóm. Fólk segir að það sé ekkert smá flott. Þannig ég er alveg hrikalega spennt að sjá. Væri endilega til í að deila, en sorrý þið!!! Haha Hvað er mín svo búin að vera að vera að gera... Helgin var alveg einstaklega í rólegri kantinum. Amma hans Jeff, og systir mömmu hans, maðurinn hennar og 2 börnin þeirra komu á fimmtudaginn. Þannig við ákváðum að vera þar um helgina, hann býr frekar langt frá mér núna, þar sem hann flutti um daginn. Þannig það tekur okkur svona 45 mín að fara niður í DC. En við fórum á föstudeginum, kíktum á höfnina, fórum á stað þar sem pabbi minn myndi elska svo mikið. Það var svona útimarkaður með kröbbum, rækjum og bara name it sem kemur úr sjónum. Agalega ódýrt. Við fórum á veitingastað þarna, sem var með hlaðborð og átum á okkur gat. Síðan fórum við og löbbuðum þar sem öll söfnin eru, og fórum inn á eitt, klukkan var orðin svo margt að við náðum bara einu. Síðan fórum við niður í Adams Morgan, svona staður með allskonar afrískum veitingastöðum, fullt af pöbbum, og solleiðis. Hef ábyggilega sagt ykkur frá þessum stað áður, en það er allavega alltaf gaman að labba þar um. Gleymdi ég að segja að maðurinn systir mömmu hans og litli frændi voru með okkur. En já allavega þá voru þeir með. Þetta var bara hrikalega góður dagur, vorum komin heim til hans um hálf 10. Þá vorum við bara orðin nokkuð uppgefin eftir daginn og fórum bara að horfa á vidjó og hafa það kósý. Sem var svo bara gert mest alla helgina. Veðrið var æðislegt um helgina, þannig við fórum bara út í körfubolta og göngutúra:) Vorum skoh aldeilis búin að ákveða að fara á djammið á laugardagskvöldið, og svo kom að kvöldmat heima hjá honum, og það var eldaður eþjópískur matur, og ég elska þannig mat, smakkaði hann á eþjópískum veitingastað not so long ago, og mmmmm rosalega gott. Þannig við bara átum ALLT OF MIKIÐ, og okkur var báðum illt, ég var bara eins og ég væri komin 5 mánuði á leið, og ég gat ekkert gert í því, maginn var bara fastur út í loftið. Við ákváðum að vera bara feit heima. Því ég hefði ábyggilega ælt á dansgólfið. En það verður BÓKAÐ farið eitthvað næstu helgi, það er kominn fiðringur í tærnar.

Jæja mitt fólk.. þakka fyrir öll kommentin, eins og þið sjáið, ef þið eruð dugleg að kommenta er ég duglegri að blogga, þannig já ég er að kenna ykkur um bloggleysið.. Nei bara aðeins að djóka:haha:

Take it easy;) Knús from America

-Berglind-


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 17:14:15 / berglind

Letin að drepa mig....

.. Síðan líður svo langt á milli færsla að ég man varla hvað ég hef verið að gera!! ég er alveg orðin glötuð í þessum bloggbransa. Ætti eiginlega bara að vera drekin....
En aLLaVEgana... síðasta vika var bara passa og svona stússerí. Aldeilis ætlaði ég í Target einn morguninn, og sá skrilljón löggubíla fyrir utan, og einn svona hjúmonges. Ég svona velti aðeins fyrir mér hvað væri eiginlega í gangi, og spyr konu sem ákvað að labba upp að dyrunum, sem ég skil ekki alveg, gat nú alveg sagt sér sjálf að það var lokað, ég sem sagt spyr hana hvað sé í gangi, neinei það var bara sprengjuhótun á Target. Þvílíka vitleysan...
Jamm... helgin hahhh, á föstudaginn vorum við Jeff alveg klár í slaginn að fara á djammið. Búin að dressa okkur upp, og Jeff var agalega fínn, nema hann var ekki með djammskóna, þið vitið lökkuðu dansskóna, neee segi svona. Ég bara reiti af mér í dag...hehe Þannig hann fór í hvítum strigaskóm, tandurhreinum hvítum strigaskóm, því eitthverra hluta vegna þá African/American fólkið heldur skónum sínum óeðlilega hreinum, og ég skil ekki hvernig þau fara að því. jamm... koma mér að efninu, við sem sagt biðum í röð, í frosti, hélt að tærnar mínar myndu detta af, neeee svo var röðin komin að okkur og dyravörðurinn bara: 20 dollara fyrir að vera í strigaskóm. Einn að reyna að græða, við héldum nú ekki, og fórum bara og keyptum okkur bjór og tókum vídjó. Alveg fáránlegt... ég hef séð fólk klætt eins og vitfirðinga þarna inni. Stelpur í flipp flopps.... Svona er lífið:S
Restin af helginni fór bara í afslöppun nema... á sunnudaginn byrjaði allt í einu að snjóa alveg crazy, og ég og Jeff fórum út að moka innkeyrsluna heima hjá honum, og viti menn ég vaknaði daginn eftir eins og ég hafi elst um 50 ár, ég var að deyja, sjáið hvað ég hreyfi mig gífulega hérna í útlöndunum:haha:

Eitthvað lítið meira að segja frá nema að það er komið þetta fínasta veður;) Heppin!!!

Hafið það gott... rosalega rosalega gott! Og þið viljið sjá meira að bloggi? Viljiði þá gjöra svo vel að kvitta fyrir innlitið!! Koma dagar sem 100 manns kíkja inn á síðuna og kannski 2 skrifa... Dónaskapur:frown:
Bæjó -Berglind-


» 17 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 04:08:03 / berglind

-Ég er svo agalega heppin-

Well well.. þá er bara miðvikudagur næstum genginn í garð. Og það á að vera 11 stiga hiti... jii elska þetta. Loksins hægt að vera úti að leika. Það gerir daginn bara svooo mikið betri að geta aðeins farið út og andað að sér frísku lofti. Ekki það að við höfum verið föst inni meðan það var kalt, en svona erfiðara að vera úti eitthvað mikið lengur en hálf tíma. Nema um daginn fórum við að renna okkur. Jiii það var svo gaman, ég var þarna eins og ég væri 5 ára. Þetta var æði:)
Síðasta helgi var voðalega róleg, við gerðum ekki mikið. Fór samt á djammið á sunnudaginn og í keilu. Djammið var það glataðasta ever. Við héldum aldeilis að við værum að fara á eitthvað svaka djamm.. Neibb þetta var bara eitthvað teknó ógeð. Þannig við borguðum 20 dollara fyrir 10 mínutur. Ömurlegt!!!
Annars er ég bara góð, mér finnst eitthavð svo leiðinlegt að skrifa blogg þessa dagana, ég er búin að vera eitthvað svo róleg. En jáhh.. omg ég og Jeff vorum í mollinu um daginn, og það var eitthver svaka bimbó þarna, og hún og vinkona hennar voru að borða, og byrjar ekki ein stelpa á öðru borða að henda í hana kjúklingabitum. Ég veit ekki hvort þær þekktust eitthvað, en allavega þá var stelpan sem var að henda í hana svört, og hin stelpan var hvít, ekki að það skipti eitthverju máli, bara þannig að þið fáið aðeins mynd af þessu. Og stelpan spyr hver hafi hent þessu, og byrjar þetta svakalega rifrildi ekki bara. Og mamma stelpunnar var þarna og hún var að verja hana, og var virkilega bara að öskra á stelpuna. You dont talk to my child like that... Brjáluð!!! ég var að deyja þarna þetta var svo fyndið:haha: haha
Hver ver barnið sitt þegar það er að henda kjúklingabitum í fólk, og mamman bara hún er bara 17 ára. Ég var jáhhh.. þegar maður er 17 ára veit maður ekki muninn á réttu og röngu.
Allt gerist í Ameríkunni... svei mér þá8|
Jæja.. hafið það bara gott.. -SAKNA YKKAR-

-Berglind-

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 16:51:31 / berglind

Knúss til ykkar allra!!!

Gleiðilegan Valentínusar dag:)

Jæja gott fólk þá er ég búin að vera hérna í aðeins meira en 7 mánuði. Eruði þið að trúa því. Tíminn flýgur. En jamm.. í dag er valentínusar dagurinn, sem er náttla mun stærri hérna í Ameríkunni en heima. Ég og Jeff ætlum út að borða í kvöld.
Af mér er annars voðalega lítið að frétta. Bara kalt og snjór hérna hjá okkur. Það er enginn skóli í dag, vegna snjós. Fyndið, en samt.. við vorum að keyra í gær frá Jeff, og ó mæ gad, það var vangefið sleift. Hélt að við myndum bara láta lífið. Við vorum að keyra svo hægt.. hehe ég var verri en gömul kona. En ég var samt ekkert mikið verri en allir hinir. Eina fólkið sem var að keyra hrikalega hratt var trukkabílstjórarnir. Enda keyrðum við fram hjá slysi, og það var risa trukkur sem hefur virkilega bara flogið inn í skóginn. Agalegt!! En ekki furðulegt miðað við hvernig þeir voru að keyra. Því gatan var virkilega ísilögð, gerist ekki svona slæmt á Íslandi. Og hérna er enginn á vetrardekkjum.
Heimþráin er öll að koma til. Held þetta sé líka bara febrúar, er eitthvað svo dimmur, kaldur og óspennandi.
Hvernig get ég eiginlega sett myndir inn í færsluna, allt í einu get ég það bara ekki lengur. Búinn að vera að reyna svo mikið. Hjálp?? eitthver:)

Var að setja inn myndir, er í sama og síðustu myndirnar. Fyrstu myndirnar í Ameríku 2007, eða eitthvað þannig. Endilega kíkiði!!

Elska ykkur, hafið það gott í dag:) Kyssist og verið happy:haha:
-Berglind-


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 00:55:03 / berglind

Óska eftir heimsókn!! :)

Þá er kominn tími á færslu. Lífið heldur bara sinn vanagang hérna í Ameríkunni. Ég að passa, chilla um helgar með manninum mínum. Um helgina var Jeff að flytja, þannig fimmtudagskvöldið, og föstudagurinn fór meira og minna bara í að flytja. Vorum uppgefinn eftir það á föstudagskvöldið, þannig það var bara tekið vidjó, pantað pizzu og borðað nammi. Hrikalega þæjó;) Á laugardaginn var kíkt aðeins í mallið, og síðan á djammið um kvöldið. Ég, Jeff, Nicole og Elina fór á stað sem heitir Home. Vangefin röð fyrir utan, ef kalla má röð, fólk var bara út um allt eitthvað að reyna að komast inn. En við komust á endanum inn. Þetta var hin ágætasta skemmtun. Á sunnudaginn var bara leti út í eitt... jisús. Bara gert ekki skít til svona 5, fórum og fengum okkur að borða, síðan að horfa á Amerískan fótbolta. Sem ég er rétt aðeins að byrja að skilja eitthvað í. Mér finnst þetta eitthvað flókið, og endalaust. Alltaf verið að stoppa leikinn og eitthvað svoleiðis vesen. Þetta var samt gaman. Jamm síðan er ég búin að vera bara í rólegheitunum. Núna er kominn þriðjudagur, vikan líður hratt. Ég er í fríi á föstudaginn, þannig þá verður gert eitthvað skemmtilegt. Ég kem líklegast heim 27. apríl, og fer aftur út 2. maí. Hún Sigurbjörg systir er að fara að gifta sig. Maður getur ekki misst af því... hmm er það nokkuð?? Sakna ykkar allra.. búin að vera svona nett heimþrá í gangi:) En ég er öll að koma til. Elska ykkur:* Ykkar –Berglind-

» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Au pair in America
Myndir-America